is
Audio
Erling Poulsen

Gullhjartað (Rauðu ástarsögurnar 22)

In App anhören
Móna er á blómaskeiði lífs síns og býr ásamt föður sínum, Winter lektor, í hjarta Kaupmannahafnar. Þegar hún uppgötvar að henni er veitt eftirför að kvöldlagi læðist illur grunur að Winter, sem er tilneyddur til að rifja upp erfiða minningu og afleiðingar hennar. Gamall fjandmaður hans er kominn til að leita hefnda og spilla friðsælli tilveru þeirra feðgina.



Rauðu ástarsögurnar samanstanda af rómantískum skáldsögum úr smiðju Erling Poulsen. Bækurnar innihalda jafnan ævintýralegar sögur þar sem staðarhættir margvíslegra borga um allan heim spila stórt hlutverk. Rómantíkin fléttast gjarnan við ferðalög en einnig dramatískar glæpasenur og leyndarmál sem býr til áhugverðan kokteil fyrir lesendur sem vilja gleyma sér í amstri hins daglega lífs.

Erling Poulsen (1919-1995) var danskur blaðamaður og rithöfundur. Hann skrifaði fjölda skáldsagna í flokki afþreyingarbókmennta, sem nutu mikilla vinsælda á sínum tíma. Ásamt því að skrifa undir eigin nafni notaðist Poulsen einnig við dulnefnin Bodil Forsberg og Else-Marie Nohr. Þekktasta skáldaga hans er „Drømmen om det hvide slot", sem var gerð að kvikmynd árið 1962 undir leikstjórn Anker Sørensen.
5:28:47
Übersetzer
Skúli Jensson
Jahr der Veröffentlichung
2023
Haben Sie es bereits gelesen? Was halten sie davon?
👍👎
fb2epub
Ziehen Sie Ihre Dateien herüber (nicht mehr als fünf auf einmal)