is
Audio
Erling Poulsen

Lausnargjaldið (Rauðu ástarsögurnar 11)

In App anhören
Þegar hin nítján ára Kit Tanning vaknar við skothvell og finnur særðan mann við heimili sitt tekur tilvera hennar stakkaskiptum. Þrátt fyrir að maðurinn þjáist af minnisleysi eftir árásina laðast Kit samstundis af hlýrri nærveru hans. Sömu nótt er hann fluttur á sjúkrahús en er stuttu seinna sakaður um glæpi á borð við mannrán og hryðjuverk. Þegar hann leitar aftur á náðir Kits á flótta undan lögreglunni stendur hún frammi fyrir erfiðri ákvörðun.



Rauðu ástarsögurnar samanstanda af rómantískum skáldsögum úr smiðju Erling Poulsen. Bækurnar innihalda jafnan ævintýralegar sögur þar sem staðarhættir margvíslegra borga um allan heim spila stórt hlutverk. Rómantíkin fléttast gjarnan við ferðalög en einnig dramatískar glæpasenur og leyndarmál sem býr til áhugverðan kokteil fyrir lesendur sem vilja gleyma sér í amstri hins daglega lífs.

Erling Poulsen (1919-1995) var danskur blaðamaður og rithöfundur. Hann skrifaði fjölda skáldsagna í flokki afþreyingarbókmennta, sem nutu mikilla vinsælda á sínum tíma. Ásamt því að skrifa undir eigin nafni notaðist Poulsen einnig við dulnefnin Bodil Forsberg og Else-Marie Nohr. Þekktasta skáldaga hans er „Drømmen om det hvide slot", sem var gerð að kvikmynd árið 1962 undir leikstjórn Anker Sørensen.
5:55:59
Übersetzer
Skúli Jensson
Jahr der Veröffentlichung
2023
Haben Sie es bereits gelesen? Was halten sie davon?
👍👎
fb2epub
Ziehen Sie Ihre Dateien herüber (nicht mehr als fünf auf einmal)