is
Audio
Peter Grønlund

Skýrsla X - Mótorhjólagengið

In App anhören
Mótorhjólagengið segir frá því þegar Andrés og Kalli sökkva sér í gamalt mál og hefja rannsókn á morðinu á Nikki Hansen, sem var meðlimur í mótorhjólagenginu Crazy Devils. Málið dregur vinina tvo inn í myrkan heim mótorhjólagengisins og þeir þurfa að komast að því hver lýgur og hver er að segja satt.

Í öskunni í brenndu húsi rannsóknarlögreglumannsins Madsen finnur Andrés gamlan málmkassa. Þar er að finna fullt af gömlum skýrslum. Þetta eru óleyst mál sem Madsen hefur kannað en nú er hann dáinn.
Sögurnar í „Skýrsla X" fjalla um Andrés og Kalla vin hans, sem ákveða að taka nokkrar skýrslurnar í sínar eigin hendur og reyna að rannsaka og leysa gömlu sakamálin.

Peter Grønlund (f. 1970) er höfundur nokkurra þekktra og vinsælla bóka sem fjalla um undirmenningar og skuggahliðar í dönsku samfélagi. Hann hefur meðal annars gefið út bækur um veggjakrot í Danmörku, ríkisfangelsið í Vridsløselille og ævisögu glæpamannsins Lonne.
1:12:07
Übersetzer
Hmh
Jahr der Veröffentlichung
2020
Haben Sie es bereits gelesen? Was halten sie davon?
👍👎
fb2epub
Ziehen Sie Ihre Dateien herüber (nicht mehr als fünf auf einmal)